Nótur um stærðfræðimenntun
2026-03-24
Kafli 1 Um textann
Þessi texti er verk í vinnslu. Hann er um stærðfræðimenntun, einkum kennslu og nám (frekar en kerfis- eða félagsfræðilega sýn). Hún er hugsuð sem kennsluefni í námskeiðinu Stærðfræði í grunnskóla sem er fyrir stærðfræðikennaranema við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hún gæti þó nýst nemendum í öðrum námskeiðum eða starfandi kennurum. Textinn gerir ráð fyrir að lesendur hafi bók Henri Picciotto og Robin Pemantle, There Is No One Way to Teach Math1 til hliðsjónar og hann á að þjóna sem stuðningur og dýpkun við lestur og notkun þeirrar bókar.
Í textanum er áherslan á undirstöðuhugtök og praktískar leiðir í kennslu, auk rýni í stærðfræðilegt efni grunnskólans. Gengið er út frá því að lesendur vinni bæði saman og með kennara, en áhugasamar manneskjur utan slíks samhengis gætu ef til vill nýtt sér textann líka.
1.1 Notkun bókar og tungumál
Ég ávarpa lesanda textans ýmist sem nemanda (hann), lesanda (hann), en stundum nota ég „þau“, „öll“, og önnur orð til að gefa til kynna að öll eru velkomin að lesa og læra af þessum texta, og persónur í verkefnatextum geta verið af ólíku kyni.
Bókina má aðlaga og nýta að vild, að hluta eða í heild, með eftirfarandi skilyrðum:
Bókin sé ekki nýtt til að valda manneskjum skaða, græða peninga, eða til að stuðla að auknum ójöfnuði milli fólks.
Ef umtalsverðir hlutar eru nýttir í öðru verki sé upprunans hér getið.